Wednesday, December 21, 2011

Hálskragi

Prjónaáramótaheitið mitt 2011 var að læra útprjón
þetta er fyrsta útprjónið mitt
hálskragi handa systir minni.
uppskriftin er í prjónaperlum

Sunday, December 18, 2011

Laufabrauðsgerð

Ómissandi hluti af jólaundirbúninginum er að fara í
laufabrauðsgerð til mömmu og pabba
hlusta á jólatónlist, spjalla og skera út listaverk.

Saturday, December 17, 2011

Lopapeysa á 1 árs

Ég hef gaman af því að prjóna lopapeysur
og gaman af skærum litum líka.
Ég er að æfa mig í að setja rennilás í opnar peysur
það finnst mér erfitt en æfingin skapar meistarann.

Tuesday, December 13, 2011

Endurunninn pappír

Eitt af því sem ég hef gaman af er endurvinnsla,
ég fór á námskeið í pappírsgerð fyrir mörgum árum
og hef síðan þá búið til pappír í jólakort fjölskyldunnar.

Sunday, November 27, 2011

Barna Lopapeysa

Einn af pninsunum í lífi mínu
glaður í lopapeysu sem ég prjónaði
handa honum.

Sunday, November 20, 2011

Ungbarnapeysa (0-6 mán)

Alltaf fæðast þau blessuð börnin
og enga stund er verið að prjóna svona smotterí,
annars er það ekki vitað hvort kynið það er svo kannski fæ
ég að prjóna annað sett jibbí.

Saturday, November 12, 2011

Ungbarnateppi

Prjóna kella startaði 2010 verkefni sem heitir Gerum góðverk
ég sendi inn nokkur stykki þá aðallega sokka og vettlinga.
Þettað árið heklaði ég og prjónaði 4 ungbarnateppi í góðverkið
frábært framtak hjá prjóna kellu, myndir og annað má sjá á facebook
síðan heitir Gerum góðverk 2011.


Tuesday, November 8, 2011

Kertagerð

Ég hef gaman af ýmsu föndri og endurvinnslu
og þegar þetta tvennt fer saman eins og í kertagerð
er ég í essinu mínu, þetta eru jólakertin 2011.


Sunday, October 30, 2011

Ullarsokkar

Þessir ullarsokkar ylja nú vinkonu minni í Noregi,
þar sem húsin eru ekki eins vel upphituð og hér á fróni.
Uppskriftirnar eru í bókinni Sokkar og fleira.

Saturday, October 22, 2011

Herrapeysa


Þessa lopapeysu prjónaði ég á vin minn Róbert og gaf honum í afmælisgjöf,
uppskriftin er í gömlu Lopa og band blaði.



 

Sunday, October 16, 2011

Hekluð blóm á seriur

Haustið 2011 fór ég á örnámskeið í hekli hjá þeim stöllum hjá Bót.is
og er þessi uppskrift frá þeim,
síðan hef ég heklað aðallega eftir youtube og er það alger snilld.

Wednesday, October 12, 2011

Vettlingar

Þessa vettlinga prjónaði ég handa systur minni og dóttur hennar svo að þeim yrði ekki kalt í vetur,
Uppskriftin er í bókinni Vettlingar og fleira.




Tuesday, October 4, 2011

Ungbarnapeysa (0-6 mán)

Ég prjónaði þessa peysu og húfu handa vinkonu minni sem eignaðist lítinn dreng í sumar
uppskriftin er í Ýr blaði.


Friday, September 30, 2011

Krans

Ég er svo heppin að dóttir mín er mikil áhugamanneskja um blóm og skreytingar,
hún hjálpaði mér að gera fyrsta kransinn minn í september 2011.
Hann lýsir mínum karater viltur og bleikur ;)


 

Sunday, September 18, 2011

Krummapeysa

Þessa peysu hannaði Guðmunda Dagbjört Guðmundsdóttir.
Ég er svo heppin að í mínu lífi eru 3 ungir menn
og þess vegna hafði ég gaman af því að leika mér með munstrið.


Sunday, September 11, 2011

Hundapeysa

Ég prjónaði þessa lopapeysu á "ömmubarnið" fyrir síðustu jól
uppskriftin er í gömlu Lopa og band blaði.