Monday, January 20, 2014

Vatn með bragðefnum.

Þar sem ég geri lítið af því að drekka gos
og sá þessa hugmynd á netinu ákvað ég að prófa
bara ansi gott
(betra að skralla sítrónuna)

1.sítróna
1.agúrka
slatti Baselika
slatti Mynta
vatn eftir smekk


Garðaprjóns vettlingar

Þessi uppskrift er í miklu uppáhaldi hjá mér
hún er úr gömlu leyniprjóni sem ég man ekki hvar var
ég hef prjónað fullt af þessum vettlingum
og sumir fóru í jólapakka í ár.
Já og annað þetta var líka áskorum í Hnoðrar og hnikklar
að prjóna úr bandi sem maður átti til.


Húfur

Tvær húfur rötuðu líka í jólapakka
prjónaðar úr Smart sem er mitt uppáhlads band
úr bókinni Garn og gaman.

Þæfðir herravettlingar

Í ár fengu margir herrar í jólagjöf
þæfða lopavettlinga prjónaðír úr þreföldum plörulopa
úr bókinni Vettlingar og fleira.




Sokkar

Hluti af jólagjöfunum í ár voru sokkar úr bókinni Sokkaprjón
alltaf jafn gaman að prjóna úr þeirri bók.