Friday, May 8, 2015

Miðar

Ég á svona ferhirning með blöðum til að rífa af
til að skrifa skilaboð og innkaupalistann minn.
Hann er að verða búinn og ég fór út í búð til að 
kaupa nýjan og mér blöskraði verðið 
svo nú geri ég eins og mamma
hún skrifaði alltaf sína innkaupalista á gömul umslög 
eða annan pappír sem féll til.
Ég fékk mér lítinn kassa
klæddi hann með gjafapappír og klippi nú niður
umslög og annan pappír sem til fellur og set í kassann
fyrir skilaaboð og innkaupalistann minn.



No comments:

Post a Comment